Forsíða
Velkomin á Wikipediu,
frjálsa alfræðiritið sem allir geta unnið að.
60.763 greinar á íslensku.
Gervigreind
Gervigreind er vitræn hegðun véla. Sú grein tölvunarfræði sem leitast við að búa hana til nefnist gervigreindarfræði. Andreas Kaplan og Michael Haenlein skilgreina gervigreind sem „getu kerfis til að túlka utanaðkomandi gögn rétt, að læra af gögnunum og nota það sem lærðist til að ná ákveðnum markmiðum og verkefnum með sveigjanlegri aðlögun“. Helstu kennslubækur um gervigreind skilgreina fagið sem „rannsókn á og hönnun vitrænna geranda“, þar sem greindur gerandi er kerfi sem skynjar umhverfi sitt og framkvæmir aðgerðir sem hámarka möguleika þess á árangri. John McCarthy sem setti hugtakið fyrstur fram árið 1956 skilgreinir það sem „þau vísindi og verkfræði sem snúast um að búa til greindar vélar“.
Fagið var stofnað á grundvelli þeirrar staðhæfingar að kjarnaeiginleika manna, greindinni (merkingu orðsins sapiens í Homo sapiens, „hinn vitiborni maður“) megi lýsa svo nákvæmlega að láta megi vél líkja eftir henni. Það kallar fram heimspekileg umhugsunarefni um eðli hugans og takmörk vísindalegs hroka sem verið hafa efni goðsagna, skáldskapar og heimspeki síðan í fornöld. Gervigreind hefur gefið mönnum tilefni til geypilegrar bjartsýni, orðið fyrir lygilegum áföllum og er í dag ómissandi hluti tækniiðnaðarins þar sem hún leysir mörg erfiðustu verkefnin í tölvunarfræðum.
Vissir þú...

- … að Ameríkuvegurinn, sem nær frá Prudhoe Bay í Alaska til Ushuaia í Argentínu, er stundum sagður lengsti þjóðvegur í heimi?
- … að talið er að aðeins ein manneskja hafi nokkurn tímann borið nafnið Sigurmagnús?
- … að Mars sjálfboðaliðanna er fyrsti þjóðsöngur Kína með texta á kínversku alþýðumáli í stað klassískrar kínversku?
- … að nafn titilpersónunnar í sögunni um dr. Jekyll og hr. Hyde (sjá mynd) var fengið frá prestinum Walter Jekyll, vini höfundarins?
- … að hvalalýs halda sér utan á hval alla ævi og deyja ef þær detta af?
Fréttir

- 24. október: Catherine Connolly (sjá mynd) er kjörin forseti Írlands.
- 21. október: Sanae Takaichi verður fyrsti kvenforsætisráðherra Japans.
- 14. október: Michael Randrianirina tekur við völdum á Madagaskar eftir valdarán gegn forsetanum Andry Rajoelina.
- 10. október:
- Venesúelski stjórnarandstæðingurinn María Corina Machado hlýtur friðarverðlaun Nóbels.
- Dina Boluarte forseti Perú er leyst úr embætti af perúska þinginu.
- 8. október: Samið er um vopnahlé í stríði Ísraels og Hamas.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Tomiichi Murayama (17. október) • Jane Goodall (1. október)
26. október
- 2000 - Yfirvöld í Pakistan sögðu frá fundi múmíu persneskrar prinsessu í Balúkistan. Íran, Pakistan og Talíbanar gerðu öll tilkall til múmíunnar þar til ári síðar að sannað var að hún var fölsun.
- 2001 - George W. Bush undirritaði Patriot-lögin.
- 2007 - Stýrikerfið Mac OS X v10.5 („Leopard“) kom út.
- 2008 - Átökin í Kivu í Kongó blossuðu upp á ný.
- 2009 - Tilkynnt var að McDonald's á Íslandi yrði lokað.
- 2010 - Um 300 fórust vegna endurtekinna gusthlaupa í Merapifjalli á Jövu í Indónesíu.
- 2012 - Fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, var dæmdur í 4 ára fangelsi vegna skattsvika.
- 2015 - 398 létust þegar jarðskjálfti reið yfir Hindu Kush-fjallgarðinn.
- 2020 - Amy Coney Barrett tók við stöðu hæstaréttardómara í Bandaríkjunum.
Systurverkefni
|
|