Ameríka
Útlit

Ameríka er meginland eða heimsálfa á milli Atlantshafsins og Kyrrahafsins. Henni oft skipt í tvær heimsálfur: Norður-Ameríku og Suður-Ameríku. Einnig stundum í Rómönsku Ameríku og Norður-Ameríku, en spænskumælandi hluti Norður-Ameríku er gjarnan kallaður Mið-Ameríka. Bandaríki Norður-Ameríku eru oft kölluð Ameríka í daglegu tali, einkum þar í landi.
Heimsálfan er nefnd eftir ítalska landkönnuðinum Amerigo Vespucci. Vespucci var fyrsti Evrópubúinn sem hélt því fram að Ameríka væri ekki Austur-Indíur, heldur áður ófundið landsvæði.