Rush


Rush er kanadísk framsækin rokkhljómsveit eða þungarokkssveit sem stofnuð var árið 1968. Sveitin hóf ferilinn í blúsrokki en síðan þróaðist tónlistin í framsæknari átt og textagerðin varð fantasíu og vísindaskáldsögutengd. Á 9. áratugnum notaðist sveitin mikið við hljómborð og hljóðgervla en hvarf aftur til gítarriffa á 10. áratugnum. Sveitin hefur haft áhrif á marga rokktónlistarmenn og hlotið ýmsar viðurkenningar. Árið 2015 fóru meðlimirnir í sitt síðasta tónleikaferðalag en þremur árum seinna var tilkynnt að þeir hyggðust hvorki spila meir á tónleikum né taka upp nýja tónlist. Neal Peart, trommari Rush, lést árið 2020.
Árið 2025 ákváðu Geddy Lee, söngvari sveitarinnar og Alex Lifeson, gítarleikari, að spila aftur á tónleikum sem Rush ásamt þýska trommaranum Aniku Nilles.
Kjarnameðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Geddy Lee – söngur, bassi og hljómborð (1968 – 2015, 2025-)
- Alex Lifeson – gítar (1968–2015, 2025-)
- Neil Peart – trommur og ásláttarhljóðfæri (1974–2015, dó 2020)
Tónleikameðlimur
[breyta | breyta frumkóða]- Anika Nilles - trommur (2025-)
Fyrrum meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- John Rutsey – trommur og ásláttarhljóðfæri (1968 – 1974, dó 2008)
- Jeff Jones – bassi og söngur (1968)
- Joe Perna – bassi og söngur (1969)
- Lindy Young – hljómborð, söngur, gítar og fleira (1969)
- Mitchel Bossi – gítar (1971)
Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- Rush (1974)
- Fly by Night (1975)
- Caress of Steel (1975)
- 2112 (1976)
- A Farewell to Kings (1977)
- Hemispheres (1978)
- Permanent Waves (1980)
- Moving Pictures (1981)
- Signals (1982)
- Grace Under Pressure (1984)
- Power Windows (1985)
- Hold Your Fire (1987)
- Presto (1989)
- Roll the Bones (1991)
- Counterparts (1993)
- Test for Echo (1996)
- Vapor Trails (2002)
- Feedback (2004)
- Snakes & Arrows (2007)
- Clockwork Angels (2012)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ RUSH Announces 2026 Tour; GEDDY LEE And ALEX LIFESON To Be Joined By ANIKA NILLES Blabbermouth, sótt 6. október. 2025