Merapifjall (Java)
Útlit
| Merapifjall | |
Merapi | |
| Hæð | 2.914 metrar yfir sjávarmáli |
| Staðsetning | Mið-Java (Indónesía) |
| Hnit | 7°32′ S 110°26′ E |
| Tegund | Eldkeila |
| Aldur | 400.000 ára |
| Síðasta gos | 2006 |
Merapifjall er keilulaga eldfjall á eynni Jövu í Indónesíu. Það er virkast allra eldfjalla í Indónesíu og hefur gosið 68 sinnum síðan 1568. Nafnið þýðir í raun Eldfjall. Það er afar nálægt borginni Yogyakarta og þúsundir búa í hlíðum þess í allt að 1.700 metra hæð yfir sjávarmáli en fjallið er um 3.000 m hátt.