Alain Poher
| Alain Poher | |
|---|---|
Alain Poher árið 1969. | |
| Forseti Frakklands (til bráðabirgða) | |
| Í embætti 28. apríl 1969 – 20. júní 1969 | |
| Forsætisráðherra | Maurice Couve de Murville |
| Forveri | Charles de Gaulle |
| Eftirmaður | Georges Pompidou |
| Í embætti 2. apríl 1974 – 27. maí 1974 | |
| Forsætisráðherra | Pierre Messmer |
| Forveri | Georges Pompidou |
| Eftirmaður | Valéry Giscard d'Estaing |
| Forseti öldungadeildar franska þingsins | |
| Í embætti 3. október 1968 – 2. október 1992 | |
| Forveri | Gaston Monnerville |
| Eftirmaður | René Monory |
| Forseti Evrópuþingsins | |
| Í embætti 7. mars 1966 – 11. mars 1969 | |
| Forveri | Victor Leemans |
| Eftirmaður | Mario Scelba |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 17. apríl 1909 Ablon-sur-Seine, Frakklandi |
| Látinn | 9. desember 1996 (87 ára) París, Frakklandi |
| Stjórnmálaflokkur | Alþýðlega lýðveldishreyfingin (1946–1966) Lýðræðismiðjan (1966–1976) Miðstöð félagshyggjumanna (1976–1995) Lýðræðisaflið (1995–1996) |
| Maki | Henriette Tugler |
| Trúarbrögð | Kaþólskur |
| Börn | 2 |
| Háskóli | École nationale supérieure des mines de Paris Sciences Po |
| Undirskrift | |
Alain Poher (17. apríl 1909 – 9. desember 1996) var franskur stjórnmálamaður sem gegndi tvisvar forsetaembætti Frakklands til bráðabirgða.
Poher var meðlimur í Alþýðlegu lýðveldishreyfingunni (fr. Mouvement républicain populaire eða MRP). Hann var kjörinn á franska þingið árið 1946 og síðan nefndur fjármálaráðherra í ríkisstjórn Roberts Schuman og síðan útgjaldaráðherra í stjórn Henris Queuille. Poher var návinur Roberts Schuman og gegndi ýmsum störfum á þingi áður en hann varð forseti Evrópuþingsins árið 1966 og forseti franska þingsins frá 1968 til 1992. Það var í krafti þess embættis sem Poher settist tvisvar til bráðabirgða á forsetastól Frakklands: Fyrst eftir afsögn Charles de Gaulle forseta (1969) og síðan eftir dauða Georges Pompidou forseta (1974). Poher hafði boðið sig fram í forsetakosningunum gegn Pompidou árið 1969 en hafði beðið ósigur í annarri umferð kosninganna.
Poher var einn þekktasti þingmaður fimmta franska lýðveldisins og er enn í dag sá sem lengst hefur setið sem forseti franska þingsins.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Alain Poher“ á frönsku útgáfu Wikipedia. Sótt 26. október 2017.