Strawberry Arena
Útlit
(Endurbeint frá Friends Arena)
| Strawberry Arena | |
|---|---|
| Staðsetning | Stokkhólmur, Svíþjóð |
| Hnit | 59°22′21″N 18°00′00″A / 59.37250°N 18.00000°A |
| Byggður | 2009-2012 |
| Opnaður | 2012 |
| Eigandi | Sænska knattspyrnusambandið og ýmsir. |
| Byggingakostnaður | 2,8 milljarðar SKR |
| Notendur | |
| Sænska karlalandsliðið í knattspyrnu (2012-nú) AIK (2013-) Melodifestivalen (2013-) | |
| Hámarksfjöldi | |
| Sæti | 50.000 |
| Stæði | 65.000 sæti + stæði á tónleikum |

Strawberry Arena, einnig þekktur sem Nationalarenan, er fjölnota leikvangur í Stokkhólmi sem er aðallega notaður undir knattspyrnu og tónleika. Hann er í Solna-hverfinu í Stokkhólmi. Sænska karlalandsliðið í knattspyrnu og félagsliðið AIK eru notendur vallarins. Melodifestivalen, undankeppni Eurovision er haldin í höllinni. Völlurinn er með lokanlegu þaki og tekur rúm 50.000 í sæti og 65.000 á tónleikum.
Þann 14. nóvember 2012 spilaði sænska landsliðið fyrsta leik sinn þar og skoraði Zlatan Ibrahimović fyrsta markið og fernu í 4-2 sigri gegn Englandi.