Windows 1.0
Skjáskot af Windows 1.0 | |
| Útgefandi | Microsoft |
| Fjölskylda | MS-DOS |
| Kjarni | Enginn |
| Vefsíða | Saga Windows |
| Staða verkefnis | Stuðningi hætt 31. desember 2001 |
Windows 1.0 er stýrikerfi, sem er ekki lengur stutt, sem kom út þann 20. nóvember 1985 og var byggt á VisiOn gluggakerfinu sem Microsoft hafði keypt af VisiCorp árið áður. Windows 1.0 var fyrsta tilraun Microsoft til að ná markaðshlutdeild á markaði fyrir stýrikerfi með myndrænt notendaviðmót, þar sem MacOS hafði ráðandi stöðu á þeim tíma.
Windows 1.0 var fyrsta stýrikerfið frá Microsoft með stuðningi við mýs, þótt þær hefðu verið studdar í sumum DOS-forritum án hjálpar stýrikerfisins.
Vélbúnaðarkröfur
[breyta | breyta frumkóða]Til að keyra Windows 1.0 þurfti tölva að vera með MS-DOS 2.0 uppsett, 256 KB af minni og tvö, tveggja leshausa diskadrif eða harðan disk.
Þessi fyrsta útgáfa Windows keyrði skeljarforritið MS-DOS M-Executive. Önnur innbyggð forrit voru meðal annars:
- Calculator (reiknivél)
- Calendar (dagatal)
- Clock (klukkan)
- Notepad (ritblokk)
- Control Panel (stjórnborð)
- Paint (teikniforrit)
- Reversi (Óþelló-leikur)
Í Windows 1.0 voru ekki fljótandi gluggar/forrit á skjánum heldur var gluggunum raðað eins og veggflísum.